Munsturteikningar fyrir axlastykki
Þegar búið er að prjóna bol og ermar eru lykkjur af þeim sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Samskeyti eru höfð við samskeyti bols og ermar, vinstra megin á baki. Munstur á axlastykkjum eru misstór.
Hér má sjá munstur á opinni peysu sem byrjar ekki fyrr en búið er að prjóna 15 umferðir í axlarstykkinu.

Hér er mun stærra munstur fyrir heila peysu sem byrjar í þriðju umferð axlarstykkisins.

Athugið að það getur verið þörf á að skipta yfir á styttri prjón þegar nálgast fer hálsmálið.