Ný ullarsápa
Ístex hefur látið framleiða sápu og mýkingarefni fyrir íslensku ullina. Sápan er sérstaklega góð fyrir flíkur sem þvegnar eru í höndum en má einnig nota í þvottavél. Sápan inniheldur hvorki bleikiefni né ensím, en þau efni eru ekki æskileg fyrir þvott á viðkvæmum flíkum.
Spurðu um sápuna þar sem lopinn fæst!
Smelltu á myndina til að fá leiðbeiningar um ullarþvott.
